Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Herra Snjall með spurningar.
Herra Snjall áskilur sér rétt til að sannreyna ástand vörunar og ef að hún telst ekki í söluhæfu ástandi, getur Herra Snjall hafnað endurgreiðslu án fyrirvara.
Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni. Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að tilkynningin berist innan 7 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Réttur neytenda (með neytenda er átt við einstakling utan atvinnustarfsemi) til að fá galla bættan er í samræmi við neytendakaupalög nr. 48/2003. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.
Ábyrgðir seljanda hafa ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup. Ábyrgð vegna galla á vöru er í samræmi við neytendakaupalög 48/2003 og miðast við kaupdagsetningu til einstaklinga utan atvinnustarfsemi. Ef um ræðir sölu á vöru til fyrirtækis (atvinnustarfsemi) er ábyrgð á galla 1 ár frá kaupdagsettningu samkvæmt lögum um lausafjárkaup lög nr 50/2000. Ábyrgð er ekki staðfest nema að kaupnótu sé framvísað.
Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits tækis eða notkunar á rekstrarvörum þ.e.a.s. hún nær ekki til tækja sem eðlilegt þykir að endist skemur en 2 ár. En almennur kvörtunarfrestur er 2 ár. Til að mynda er rafhlaða fartölva og farsíma rekstrarvara og getur þurft að endurnýja fyrir lok vélbúnaðar ábyrgðar. Fartölvu/farsímaframleiðandi veitir þó að lágmarki 6 mánaða ábyrgð óháð notkun á rafhlöðum (sýna þarf fram á að um galla sé að ræða sé varan eldri en 6 mánaða en ekki t.d eðlilegt slit.) Eðlilegt er að endurnýjun geti átt sér stað bilinu 6-24 mánaða. Ábyrgð fellur úr gildi ef tækið hefur verið opnað eða átt hefur verið við það án yfirumsjónar/samþykkis seljanda þrátt fyrir að þar hafi verið að verki verkstæði og/eða viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur einnig niður ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar og er kaupanda bent á að lesa gaumgæfilega leiðbeiningar eða handbók skvt. 10. grein þessa skilmála. Ekki er ábyrgð á hugbúnaði eða öðrum óáþreifanlegum hlutum (hlutum sem hafa áhrif á eiginleika tækisins eins og vírusar og annað sem ekki er hægt að rekja til framleiðanda).
Í sumum tilfellum eru einstakar vörur eða vörumerki með lengri ábyrgðartíma. Í þeim tilfellum sem það á við er slíkt tekið fram.
Seljandi er ekki skuldbundinn til að taka þátt í viðgerðarkostnaði, gefa afslætti, skipta út vöru o.s.frv. eftir að ábyrgðartíma lýkur. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála, þó innan eðlilegra tímamarka. Ef að til úrlausnar ábyrgðar kemur, er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni.