Sendingarskilmálar

Afhendingar skilmálar 

Allar vörur eru afgreiddar innan þriggja virkra daga frá pöntun eða í samkomulagi við viðskiptavini hverju sinni. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Hægt er að sækja pöntun til Herra Snjall, að Krókhálsi 6 eða fá pöntuna send með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Snjalltæki / Herra Snjall ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Herra Snjall til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. 

Ef óskað er eftir að geyma ósótta vöru í vöruhúsi Herra Snjall er geymslutími að hámarki 2 vikur, ef óskað er eftir að geyma vöru lengur en það er krafist mánaðarlegt geymslugjalds sem um nemur 5% af upphæð vörunnar. 

 

Yfirferð á vörum 

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samkvæmt vörulýsingu og ógallaðar. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu,. Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 14 daga. Eftir 14 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda. Í flestum tilfellum felur það í sér athugun hjá viðurkenndum þjónustuaðila.