ALTA LABS NETSKIPTIR 16 x GbE með 8 x PoE+ og 2 x SFP L2

Alta Labs S16‑PoE netskiptir e. (Switch). Alta Labs er nýr og framsækinn framleiðandi á sviði netbúnaðar sem leggur áherslu á afkastamiklar, sveigjanlegar og notendavænar netlausnir.

S16‑PoE er öflugur netskiptir e. (Switch), sem hentar jafnt fyrirtækjum sem stærri heimilisnetum. Netrofinn er með 16 Gigabit Ethernet-tengjum sem styðja 10/100/1000 Mbps, þar af eru 8 tengi með PoE+ spennufæðingu. Heildarafl PoE er allt að 120 Wött og hvert PoE+ tengi getur veitt allt að 30 Wött.

Auk þess er S16‑PoE með 2 x SFP-tengjum fyrir allt að 1 Gbps ljósleiðara- eða kopartengingar. Netrofann má festa í tækjaskáp eða á vegg og hann er viftulaus, sem tryggir hljóðláta notkun.

Tækinu er stýrt í gegnum Alta Networks smáforritið e. (App) eða í tölvu í gegnum vafra. Stjórnkerfið er aðgengilegt hvar og hvenær sem er og býður meðal annars upp á rauntímaupplýsingar, stillingar tengja, yfirlit yfir tengd tæki og stjórnun margra staðsetninga. Innbyggt Bluetooth auðveldar fyrstu uppsetningu í gegnum smáforritið.

S16‑PoE – öflugur og skalanlegur netskiptir fyrir heimili og fyrirtæki.

Helstu eiginleikar:

  • 16 x RJ45 Ethernet-tengi sem styðja 10/100/1000 Mbps

  • 8 x 802.3at PoE+ tengi

  • Samhæft við eldri 802.3af PoE-staðal

  • Allt að 30 Wött um hvert PoE+ tengi

  • Heildarafl PoE allt að 120 Wött

  • 2 x SFP-tengi fyrir allt að 1 Gbps ljósleiðara- eða kopartengingar

  • Skiptigeta: 36 Gbps

  • Non-blocking gagnaflutningur: 18 Gbps

  • Framsendingarhraði: 26,8 Gbps

  • Stjórnun í gegnum Alta Networks smáforrit eða vafra

  • Bluetooth-uppsetning

  • Takmörkun á inn- og útleiðarhraða

  • IGMP Snooping

  • 802.1X auðkenning

  • Sjálfvirk greining á netlykkjum

  • Orkusparandi Ethernet

  • Skýjastýring fyrir margar staðsetningar

  • Hægt að festa í 19" tækjaskáp eða á vegg

  • Viftulaus og hljóðlát kæling

Tækniupplýsingar:

  • Netviðmót: Ethernet og Bluetooth

  • Ethernet-tengi: 16 x 10/100/1000 Mbps RJ45

  • PoE+ tengi: 8 x 802.3at PoE+

  • SFP-tengi: 2 x SFP, allt að 1 Gbps

  • Hámarks PoE-afl á hvert tengi: 30 Wött

  • Heildarafl PoE: 120 Wött

  • PoE-útgangur: 54 VDC, 0,6 A að hámarki

  • Pakkaminni: 4,1 Mbit

  • Stærð MAC-vistfangatöflu: 8.000

  • LED-ljós fyrir PoE: Appelsínugult

  • LED-ljós fyrir nettengingu: Appelsínugult fyrir 10/100 Mbps og blátt fyrir 1000 Mbps

  • LED-ljós fyrir SFP: Blátt fyrir tengingu og virkni við 1000 Mbps

  • Bluetooth-staðall: BLE

  • Bluetooth-tíðni: 2,4 GHz

  • Bluetooth-sendarafl: 7 dBm EIRP

  • Loftnetsstyrkur: 2 dBi

  • Orkunotkun í biðstöðu: 6,5 Wött

  • Hámarks orkunotkun án PoE: 23 Wött

  • Hámarks orkunotkun með fullri PoE-nýtingu: 143 Wött

  • Aflgjafi: Innbyggður, 100–240 VAC, 50–60 Hz

  • Yfirspennuvörn RJ45-tengja: 12 kV ESD við snertingu og 25 kV ESD í lofti

  • Stærð: 44 x 254 x 441,5 mm

  • Þyngd: 3,6 kg

  • Efni: SGCC-stál

  • Áferð: Matt dufthúðuð áferð

  • Litur: Málmgrár

  • Umhverfishitastig: -5 til 50 °C

  • Umhverfisrakastig: 10 til 90%, án rakaþéttingar

  • Kæling: Viftulaus

  • Vottanir: CE, FCC og IC

  • Festingar fyrir tækjaskáp fylgja með