









Alta Labs S24‑PoE netskiptir e. (Switch). Alta Labs er nýr og framsækinn framleiðandi á sviði netbúnaðar sem leggur áherslu á afkastamiklar, sveigjanlegar og notendavænar netlausnir.
S24‑PoE er öflugur og skalanlegur netskiptir e. (Switch), sem hentar sérstaklega vel fyrir fyrirtæki, stærri heimilisnet og kröfuharðar netuppsetningar. Netskiptirinn er með 24 Gigabit Ethernet-tengjum sem styðja 10/100/1000 Mbps, þar af eru 16 tengi með PoE+ spennufæðingu. Heildarafl PoE er allt að 240 Wött og hvert PoE+ tengi getur veitt allt að 30 Wött.
Auk þess er S24‑PoE með 2 x SFP+ tengjum fyrir afkastamiklar ljósleiðara- eða kopartengingar. Tengin styðja 1, 2,5, 5 og 10 Gbps tengihraða. Netskiptinn má festa í tækjaskáp eða á vegg og hentar því vel fyrir fjölbreyttar netuppsetningar.
Tækinu er stýrt í gegnum Alta Networks smáforritið e. (App) eða í tölvu í gegnum vafra. Stjórnkerfið er aðgengilegt hvar og hvenær sem er og býður meðal annars upp á rauntímaupplýsingar, stillingar tengja, yfirlit yfir tengd tæki og stjórnun margra staðsetninga. Innbyggt Bluetooth auðveldar fyrstu uppsetningu í gegnum smáforritið.
S24‑PoE – öflugur og skalanlegur netskiptir fyrir fyrirtæki og kröfuharðar netuppsetningar.
Helstu eiginleikar:
24 x RJ45 Ethernet-tengi sem styðja 10/100/1000 Mbps
16 x 802.3at PoE+ tengi og 8 x GbE RJ45 port
Samhæft við eldri 802.3af PoE-staðal
Allt að 30 Wött um hvert PoE+ tengi
Heildarafl PoE allt að 240 Wött
2 x SFP+ tengi fyrir ljósleiðara- eða kopartengingar
SFP+ tengihraði: 1, 2,5, 5 og 10 Gbps
Skiptigeta: 88 Gbps
Non-blocking gagnaflutningur: 44 Gbps
Framsendingarhraði: 65,5 Gbps
Stjórnun í gegnum Alta Networks smáforrit eða vafra
Bluetooth-uppsetning
VLAN Stacking, einnig þekkt sem Q-in-Q
Takmörkun á inn- og útleiðarhraða
IGMP Snooping
802.1X auðkenning
Sjálfvirk greining á netlykkjum
Orkusparandi Ethernet
Skýjastýring fyrir margar staðsetningar
Hægt að festa í 19" tækjaskáp eða á vegg
Tækniupplýsingar:
Netviðmót: Ethernet og Bluetooth
Ethernet-tengi: 24 x 10/100/1000 Mbps RJ45
PoE+ tengi: 16 x 802.3at PoE+
SFP+ tengi: 2 x SFP+
SFP+ tengihraði: Allt að 10 Gbps
Hámarks PoE-afl á hvert tengi: 30 Wött
Heildarafl PoE: 240 Wött
PoE-útgangur: 54 VDC, 0,6 A að hámarki
Pakkaminni: 12 Mbit
Stærð MAC-vistfangatöflu: 16.000
LED-ljós fyrir PoE: Appelsínugult
LED-ljós fyrir Ethernet-tengingu: Appelsínugult fyrir 10/100 Mbps og blátt fyrir 1000 Mbps
LED-ljós fyrir SFP+: Blátt fyrir 1, 2,5 og 5 Gbps og hvítt fyrir 10 Gbps
Bluetooth-staðall: BLE
Bluetooth-tíðni: 2,4 GHz
Bluetooth-sendarafl: 7 dBm EIRP
Loftnetsstyrkur: 2 dBi
Orkunotkun í biðstöðu: 15 Wött
Hámarks orkunotkun án PoE: 53 Wött
Hámarks orkunotkun með fullri PoE-nýtingu: 295 Wött
Spennuþörf: 100–240 VAC, 50–60 Hz
Yfirspennuvörn RJ45-tengja: 12 kV ESD við snertingu og 25 kV ESD í lofti
Stærð: 44 x 254 x 441,5 mm
Þyngd: 3,6 kg
Efni: SGCC-stál
Áferð: Matt dufthúðuð áferð
Litur: Málmgrár
Umhverfishitastig: -5 til 50 °C
Umhverfisrakastig: 10 til 90%, án rakaþéttingar
Kæling: Innbyggð vifta
Vottanir: CE, FCC og IC
Festingar fyrir tækjaskáp fylgja með